Þriðjudagur 20.11.2007 - 14:30 - Ummæli ()

Næsta olíustórveldið: Brasilía

lula-da-silva.jpgBrasilíumenn eru í skýjunum eftir að ríkisolíufyrirtækið Petrobras tilkynnti 8. nóvember s.l. að fundist hefðu risastórar olíulindir undir hafsbotni um 200 kílómetra úti fyrir ströndum suðurhluta Brasilíu.

Luiz Inácio Lula da Silva forseti Brasilíu sagði í útvarpsþætti nýlega að svo virtist sem æðri máttarvöld hefðu lagst á sveif með Brasilíumönnum. Hingað til hefur olívinnsla í Brasilíu rétt dugað innanlandsmarkaði en nú eru horfur á að landið verði eitt helsta  útflutningsríki heims á olíu. Tímaritið Business Week skýrir frá þessu.

Talið er að nýja svæðið, sem kallast Tupi, geymi samsvarandi 5 til 8 milljörðum olíufata af olíu og gasi. Þetta er stærsti fundur sinnar tegundar síðan árið 2000 þegar 13 milljarða fata svæði fannst í Kazakhstan. Heildarmagn vinnanlegra olíubirgða í jörðu er nú talið vera u.þ.b. 1.300 milljarðar fata. Brasilía var áður í 16. sæti þeirra ríkja sem búa yfir stærstu olíubirgðum í jörðu. Eftir fundinn er búist við að það færist upp um nokkur sæti og verði í 7. til 10 sæti. Sjá lista frá 2006 yfir olíbirgðir einstakra ríkja hér.

En vinnsla á nýja svæðinu verður tæknilega erfið. Hafdýpið á svæðinu er rúmlega 2.100 metrar og síðan þarf að bora í rúmlega fimm kílómetra til viðbótar eftir olíunni í gegnum sand, berg og saltlög. Ofurtölvur og hárþóuð þrívíddar-myndtækni voru notuð til að greina jarðlögin og aðferðirnar gætu þýtt enn eina endurskoðun á hámarksolíukenningunni, þ.e. seinka þeim tímapunkti sem olívinnsla hættir að borga sig.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is