Laugardagur 24.11.2007 - 12:54
- Ummæli
()
Æ, shit Oliver
Kokknum sæta en smámælta, Jamie Oliver, tókst að móðga Angelinu Jolie alveg hrikalega með því að bera nafn dóttur hennar og Brads Pitt kolrangt fram.
Stúlkan heitir Shiloh en Jamie klúðraði því svo illa að blaðamenn the Daily Star stinga upp á að hann búi til uppáhalds mat Angelinu, sem ku vera Cheerios-baka, og biðji hana svo auðmjúklega afsökunar.
En hversu mikið þarf að klúðra einu nafni til að uppáháldsmatur og afsökunarbeiðni séu nauðsynleg til að bæta skaðann?
Jú, tungan flæktist svo illa í munni Jamie að hann missti nokkra stafi úr nafninu. Afleiðingin var að hann kallaði stúlkuna Shiloh Sh*t!
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is