Laugardagur 24.11.2007 - 11:30 - Ummæli ()

Orkuveitunni og Hitaveitu Suðurnesja skipt í nokkur félög

hellisheidarvirkjun.jpgHitaveitu Suðurnesja verður skipt í þrennt og Orkuveitu Reykjavíkur í nokkur félög einnig, ef tillögur sem nú eru ræddar innan stýrihóps um málefni Orkuveitu Reykjavíkur verða að veruleika. 24 stundir skýra frá tillögunum í dag.

Hafnarfjörður verður einnig hugsanlega einn eigenda OR. Sérstök félög verða stofnuð um grunnstarfsemi annars vegar og framleiðslu á raforku vegna stóriðju hinsvegar hjá OR og HS. Stefnt er að því að OR verði ekki breytt í almennt hlutafélag og verði að fullu í eigu sveitarfélaga.

Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem situr fundi stýrihópsins, segir í frétt 24 stunda að þessar tillögur séu ekki stýrihópsins. „Ég veit ekki enn hvaðan þessar tillögur eru komnar. Þær eru ekki í neinu samhengi við það sem við höfum rætt inni í stýrihópnum og ganga í raun gegn þeirri leið sem við héldum að fara ætti. En það er verið að vinna samkvæmt þessum tillögum.“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist ekki geta svarað því hver hafi samið tillögurnar og sakar sjálfstæðismenn í borgarstjórn um að „reyna að leka einhverjum vinnuskjölum út úr trúnaðarstarfi vinnuhóps sem hefur verið með ýmsar tillögur til umfjöllunar til að þyrla upp ryki.“  Hann segir borgarráð hafa falið sér að beita sér fyrir viðræðum um framtíð Hitaveitu Suðurnesja, sem sé lykilþáttur í þessu. „Ég sendi í upphafi vikunnar bréf til forsætisráðherra og meðeigenda okkar í HS og vonast til þess að geta komið á fundi þar fljótlega,“ er haft eftir Degi í fréttinni.

Í frétt 24 stunda kemur fram, að samkvæmt sáttatillögum um málefni Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem Svandís Svavarsdóttir lagði fram þann 13. nóvember, verði Hitaveitu Suðurnesja verða skipt upp í þrjú félög. Félag A verður myndað um orku HS. Félag B eignast jarðhitaréttindi HS og annast dreifingu og smásölu á orku á Reykjanesi og vera að fullu í eigu Reykjanesbæjar. Félag C annast dreifingu og smásölu á orku í Hafnarfirði og verður í 100 prósenta eigu OR.

Hafnarfjörður yrði eignaraðili að OR ef bærinn seldi fyrirtækinu hlut sinn í HS og legði jafnframt eigin jarðhitaréttindi á Reykjanesi og vatnsveitu bæjarins inn í OR. Hafnfirðingar fengju greitt í peningum og með eignaraðild í OR, sem ákvörðuð yrði af tveimur óháðum matsmönnum. Lagt er til að teknar verði upp viðræður við meðeigendur OR í HS og ríkisstjórnina um framtíð HS. Borgarstjóri hefur þegar fengið umboð til að hefja slíkar viðræður.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is