Mánudagur 26.11.2007 - 10:23
- Ummæli
()
Átta létust í fagnaðarlátum á fótboltavelli í Brasilíu
Átta brasilískir fótboltaáhangendur létu lífið í gær þegar pallur hrundi á Fonte Nova Stadion í strandbænum Salvador.
Lögreglan rannsakar aðstæður en hefur ekki gefið upp hvað nákvæmlega gerðist. Dagblöð í Brasilíu eru þó ómyrk í máli og segja völlinn, sem er 56 ára gamall, hafa verið vanræktan og illa við haldið.
Það voru áhangendur liðsins Bahia sem fögnuðu gríðarlega þegar liðið hafði tryggt sér sæti í annarri deild með 0-0 leik gegn Vila Nova. Áhorfendur hoppuðu og stöppuðu í takt þangað til sementsgólf gaf sig og fjöldi manns hrapaði niður um gatið.
Átta létu lífið, en talið er að 60.000 manns hafi verið á leiknum.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is