Ísland best í heimi – skýtur Noregi niður í annað sæti
Ísland er komið upp fyrir Noreg hvað varðar bestu lífskjör í heimi og hefur nú skotið Noregi niður í annað sætið. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem var birt í dag.
Ríki undirlögð af eyðni í Afríku skrapa botninn meðan rík fríverslunarríki eru í efstu sætunum sem eftirsóknarverðustu staðirnir til að búa á.
Á eftir Íslandi og Noregi kemur Ástralía, þá Kanada og Írland en Bandaríkin féllu niður í tólfta sæti eftir að hafa verið í áttunda sæti í fyrra.
Það kemur líka fram í skýrslunni að þau 22 ríki þar sem lífslíkur eru sístar, menntun lítil sem engin og lítill hagvöxtur eru öll í Afríku, og þar er Sierra Leone langverst statt.
Í tíu af þessum löndum munu tvö af hverjum fimm börnum ekki ná fjörutíu ára aldri. Í síðustu skýrslu SÞ kom fram að eyðni hefði hrikaleg áhrif á lífslíkur fólks í þessum löndum.
Skýrslan tekur til 175 landa innan Sameinuðu þjóðanna auk Hong Kong og Palestínu. 17 ríki eru ekki meðtalin, þar á meðal Írak, Afganistan og Sómalía, vegna óáreiðanlegra upplýsinga.
Sjá frétt á reuters.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is