Fimmtudagur 29.11.2007 - 14:46 - Ummæli ()

Klerkar vilja hámarksrefsingu í bangsamáli – Brown fylgist með

gibbons.jpgGillian Gibbons, 54 ára bresk kennslukona í Súdan, sem var handtekin á sunnudaginn fyrir að leyfa bekknum sínum að skíra leikfangabangsa Mohammad, var formlega ákærð í gær.  Sakarefnin eru lítilsvirðing við trúarbrögð, að hvetja til haturs og að sýna trúarskoðunum fyrirlitningu — allt saman brot á 125. grein Sharia refsilöggjafarinnar í Súdan.

Hún gæti átt yfir höfði sér allt að sex mánaða fangelsi, og annað hvort sekt eða húðstrýkingu, 40 högg með bambusvendi.

Hún var leidd fyrir rétt í höfuðborginni Khartoum í dag. Breski konsúllinn á staðnum fékk ekki að vera viðstaddur réttarhöldin yfir henni. Það leiddi til þess David Miliband utanríkisráðherra Breta kallaði sendiherra Súdans á sinn fund til að ræða málið.

Miliband sagði að sendiherranum yrði sterklega gerð ljós sú skoðun breskra stjórnvalda, að málið væri einfaldlega sakleysislegur misskilningur og vonaðist til að heilbrigð skynsemi yrði látin ráða.

Gordon Brown forsætisráðherra hefur fylgst náið með málinu og rætt við fjölskyldu frú Gibbons.

Stjórnmálaskýrandi BBC segir bresku stjórnina vera að reyna að forðast milliríkjadeilu vegna málsins. Það gæti reynst erfitt. Fólk hefur safnast kringum dómshúsið og lögregla hefur slegið skjaldborg kringum það. Æðstu klerkar Súdans hafa krafist hámarks refsingar gegn frú Gibbons og segja atvikið vera vestrænt samæri gegn Islam. Talsmaður múslíma í Bretlandi krefst þess að hún verði látin laus tafarlaust.

Muhammad er algengt nafn í Súdan en um leið nafn spámannsins í íslamstrú. Strákur í bekknum, þar sem nemendurnir eru flestir sjö ára, hefur sagt að að hann hafi stungið upp á að skíra bangsann í höfuðið á sjálfum sér. Kosið var um nafnið í bekknum og 20 af 23 börnum kusu að nefna bangsann Muhammad. Atvikið átti sér stað í september. Kæran var lögð fram eftir að íslamskt foreldri barns lagði fram formlega kvörtun vegna málsins.

Mynd: AFP/Nordic Photo


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is