Fimmtudagur 29.11.2007 - 15:32 - Ummæli ()

Kveikt á norska trénu á sunnudag

Tendruð verða ljós á Oslóartrénu, árlegri gjöf Norðmanna til Íslendinga, klukkan 16 á sunnudag, sem er hinn fyrsti í aðventu.

Sá siður hefur haldist í meira en hálfa öld að Norðmenn færi Íslendingum grenitré til að skreyta Reykjavík yfir aðventu og jól. Tréð í ár höggvið í Sognsvann sem er eitt vinsælasta útivistarsvæði Oslóarbúa og er rúmlega 12 metra hátt.

Lúðrasveit Reykjavíkur hefur dagskrána kl. 15.30 með því að leika jólalög. Dómkórinn syngur ásamt norskum barnakór og ávörp flytja Knut Even Lindsjörn, formaður borgarstjórnarflokks Vinstri grænna í Osló, sem færir  Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra, og öðrum Reykvíkingum tréð að gjöf og  fær hinn 10 ára gamli norsk-íslenski Árna Óttar Halldórsson þann heiður að kveikja ljósin á trénu góða.
Hápunkti nær dagskráin sjálfsagt þegar jólasveinarnir Giljagaur, Skyrgámur og Bjúgnakrækir koma á  Austurvöll  að hitta börn á öllum aldri.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is