Sunnudagur 02.12.2007 - 12:31 - Ummæli ()

Tæland: Kaupa atkvæði með Viagra

thai.jpgFrambjóðendur til þingkosninga í Tælandi reyna að tryggja sér stuðning eldri karlmanna með því að gefa þeim ókeypis Viagra töflur, að því er embættismaður í landinu segir. Tælendingar ganga að kjörborðinu þann 23. desember og verða það fyrstu kosningarnar í landinu frá því að herinn steypti Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra, af stóli á síðasta ári.Kjósendur í Prathumthani, útborg Bangkok, hafa greint frá því að sumir frambjóðendur útdeili Viagra töflum til þeirra sem lofa stuðningi við þá. „Þorpsbúarnir sögðu mér að frambjóðendur hefðu gefið þeim 1-2 Viagra-töfur,“ sagði Sayan Nopkham, embættismaður stjórnvalda í samtali við AFP-fréttastofuna. „Síðan koma þeir til mín og biðja um fleiri töflur eða kaffi og lofa að kjósa bróður minn í staðinn, en hann er líka í framboði.“

Atkvæði hafa löngum gengið kaupum og sölum í Tælandi en með nýlegri löggjöf hafa refsingar við þeim viðskiptum verið hertar. Hver sá, sem sakfelldur er fyrir að kaupa atkvæði, á yfir höfði sér allt að 10 ár í fangelsi en kjósendur sem láta kaupa sig geta fengið allt að fimm ára dóm. Engar formlegar kærur hafa borist vegna Viagra-tilboða frambjóðenda en flestar vísbendingar um svindl í kosningabaráttunni snúa að því að kjósendum sé borgað fyrir að ganga í flokka eða að þeim sé lofað peningum fyrir að kjósa ákveðna frambjóðendur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is