Vatnshalli skúrsins á Brúnastöðum réði útgjöldum til landbúnaðarins
Vatnshallinn á skúrþaki austur á Brúnastöðum, bænum þar sem Guðni Ágústsson ólst upp, var það atriði sem réði þróun ríkisútgjalda til landbúnaðarins í ráðherratíð Guðna Ágústssonar. Þakið er nánast flatt, – vatnshallinn aðeins 1%. Frá þessu segir Guðni Ágústsson með eftirfarandi hætti í æviminningum sínum, sem Sigmundur Ernir Rúnarsson skráði:
„Að öllum nýjum búvörusamningum koma starfsmenn fjármálaráðuneytisins, sem Geir H Haarde ber ábyrgð á um þetta leyti. Það er verkefni landbúnaðarráðherra með fjármálaráðherra og forsætisráðherra að ná fram niðurstöðu um það fjármagn sem megi leggja til nýs sáttmála. Sá prúði og varfærni maður sem Geir H. Haarde er í embætti reynist nýjum landbúnaðrráðherra á stundum óþægur ljár í þúfu í þeirri viðleitni hans að rétta við hlut landbúnaðarins þegar kemur að samningum við bændur. Hann vill að við gerð allra nýrra búvörusamninga verði verulegur samdráttur í fjárútlátum ríkisins til landbúnaðarins. Forsætisráðherra er á sama máli og Geir í þessum efnum; finna verði viðunandi halla á stuðningi ríkisins við bændur, ríkissjóði í vil – einhvern vatnshalla, eins og hann orðar það sjálfur. Guðni ræðir þetta nánar við Davíð forsætisráðherra og stingur upp á því í gamni sínu hvort ekki sé einfaldlega réttast að miða við vatnshallann á skúrþakinu austur á Brúnastöðum. Davíð sýnist það heilladrjúgt. Jú, það hlýtur að vera mátulegur halli, segir Davíð. Guðni er sáttur enda veit hann sem er að þakið á gamla skúrnum heima á hlaði er nánast flatt. Það kemur á daginn að vatnshallinn þar er ekki nema eitt prósent. Guðni ber þessar mælingar undir Davíð sem reynist maður orða sinna. Nú, þá verður það að gilda, segir forsætiráðherrann. Hér eftir, bætir hann við, höfum við eitt prósent halla á nýjum búvörusamningum á móts við þá gömlu. Það gengur eftir – og er ekki frekar deilt um viðmiðið í þessum efnum í ríkisstjórn Íslands.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is