New York Times: Íran stöðvaði kjarnorkuvopnaþróun 2003
Í nýju mati leyniþjónustustofnana Bandaríkjanna er komist að þeirri niðurstöðu að Íranar hafi stöðvað kjarnorkuvopnaáætlun sína árið 2003 og að áætlunin sé nú í biðstöðu.
Þetta kemur fram í forsíðufrétt New York Times síðdegis í dag. Nýja matið gengur þvert á tveggja ára gamlar niðurstöður sömu greiningarstofnanna, þar sem talið var að Íranar héldu áætluninni áfram.
Í fréttinni eru líkur leiddar að því, að nýja matið hafi mikil áhrif á yfirstandandi alþjóðlegar samningaviðræður, sem miðað hafa að því að fá Írana ofan af kjarnorkuáformum sínum. Það hefur líka áhrif á kosningabaráttuna um í forsetaembættið í Bandaríkjunum, þar sem hugsanleg árás á Íran vegna kjarnorkuáformanna hefur verið til umræðu.
Matið er endurspeglar sameiginlegt álit sextán bandarískra leyniþjónustustofnana. Í því segir m.a. að „enn sé ekki ljóst hvert stjórnvöld í Teheran stefni endanlega varðandi kjarnorkuvopn, en að mat þeirra ráðist nú frekar af því hvort stefnan sé þeim gagnleg eða skaðleg, frekar en að þeir keppist við að koma sér upp slíkum vopnum án tillits til pólitískra, efnahagslegra og hernaðarlegra afleiðinga.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is