Miðvikudagur 05.12.2007 - 09:30 - Ummæli ()

Ekki allt með felldu um hvarf kanó-mannsins – er nú í haldi lögreglu

kanomann1.jpgJohn Darwin, kanómaðurinn sem skyndilega dúkkaði upp í London eftir fimm ára fjarveru, hefur verið tekinn fastur af lögreglu að því er fram kemur á BBC og Sky News.

John Darwin var álitinn hafa farist eftir að leifar af kanó hans fundust á strönd nærri Hartlepool í mars árið 2002 og hann var úrskurðaður látinn árið 2003.

Hinn 57 ára gamli Darwin gekk svo inn á lögreglustöð í London um helgina eins og ekkert hefði í skorist og kveðst ekkert muna hvar hann hafi verið þann tíma sem hann var horfinn.

kano1.jpg
Eiginkona hans, Anna, seldi nýlega hús þeirra hjóna í Englandi og keypti sér hús í Panama. Hún segir í viðtali við dagblað þar að hún hafi tekið úr líftryggingarfé Darwins í góðri trú, en nú gæti farið svo að hún yrði krafin um féð til baka.

Cleveland-lögreglan segir að maðurinn hafi verið handtekinn af Hampshire-lögreglunni að þeirra beiðni en vildi ekki tjá sig frekar.

Darwin dvaldi hjá sonum sínum, Anthony og Mark, þegar hann var handtekinn og heldur því stöðugt fram að hann muni ekkert síðan í júní 2002.
Dagblaðið Daily Mirror hefur þó birt mynd sem á að vera af John Darwin með eiginkonu sinni Önnu og birtist árið 2006 á heimasíðu fyrirtækis sem selur sumarhús. Myndin á að hafa verið tekin í Panama í júlí 2006. Myndin er til hægri hér á síðunni.

Lögreglan biður alla sem mögulega geta gefið upplýsingar um ferðir Darwins að snúa sér til lögreglu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is