Frönsk kartafla og hálfétið popkorn Beckhams til sölu á netinu
Nýsjálenskir aðdáendur fótboltastjörnunnar Davids Beckham eru að reyna að græða á nýlegri heimsókn hans til Nýja Sjálands með því að selja ýmsar vörur á netinu honum tengdar.
Vörurnar sem um er að ræða eru meðal annars umbúðir utan af mat sem Beckham lagði sér til munns og óhreinir diskar.
Á nýsjálensku síðunni Trade Me er til sölu hálfétinn popkornspoki stjörnunnar, næstum tóm flaska af kóki og ein frönsk kartafla sem seljandinn segir að Beckham hafi misst á göngu sinni á Wellington street.
Hálfétinn maísstöngull og gosflaska koma frá kjúklingastað þar sem Beckham át á fimmtudagskvöld. Seljandinn er líka með disk og hnífapör sem hann segir Beckham hafa notað á veitingastaðunum.
Þegar hefur verið boðinn einn dalur í frönsku kartöfluna, sem einhver hækkaði svo í þrjá dollara.
Beckham var í höfuðborg Nýja Sjálands í þrjá daga í síðustu viku með LA Galaxy-fótbotaliðinu. Hann fór á sunnudag til að hitta Victoríu eiginkonu sína í Vancouver þar sem Spice Girls voru með tónleika.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is