Forysta Mike Huckabee styrkist, forskot Hillary minnkar
McClatchy fréttastofan birti í gær nýja könnun á fylgi frambjóðenda demokrata og repúblíkana í Iowa, New Hampshire og Suður Karólínu, en fyrstu prófkjör flokkanna vegna komandi forsetakosninga eru haldin í þessum fylkjum. Niðurstöður könnunarinnar sýna að breytingar hafa orðið á fylgi helstu frambjóðenda beggja flokka. Þó mjög mjótt sé á muninum á milli helstu frambjóðenda demokrata virðast mun meiri sviptingar hafa átt sér stað á fylgi frambjóðenda Repúblíkana, sem fréttaskýrendur telja að bendi til að kjósendur flokksins séu enn mjög óákveðnir og ósáttir við frambjóðendur flokksins. Samkvæmt könnun McClatchy sýnir enda að 20% kjósenda Repúblíkana í þessum fylkjum enn óákveðnir.
Forysta Huckabee styrkist
Athyglisverðast er að Mike Huckabee hefur nú forystu bæði í Iowa og Suður Karólínu. Forskot hans í Iowa hefur einnig aukist, en nú segjast 32% repúblíkana að þeir muni styðja hann í prófkjöri flokksins þann 3. janúar næstkomandi. Mitt Romney, sem lengi vel hafði forystu í Iowa, nýtur aðeins stuðnings 20% kjósenda, og Fred Thompson 11%.
Rudy Giuliani nýtur aðeins stuðnings 5% repúblíkana í Iowa. Í Suður Karólínu hefur Huckabee 3% forskot á Rudy Giuliani, sem nýtur stuðnings 17% kjósenda. Prófkjör flokkanna í Suður Karólínu verða haldin 19 janúar.
Hillary Clinton er enn með forystu í öllum þremur fyrstu prófkjörsfylkjunum, þó Barack Obama hafi saxað verulega á forskot hennar. Forskot Clinton á Obama er þó ekki nema tvö til þrjú prósentustig.
Huckabee gagnrýndur fyrir ummæli um “eyðinpláguna”
Vaxandi fylgi Mike Huckabee að undanförnu hefur vitaskuld vakið athygli fjölmiðla. Fram til þessa hefur fjölmiðlaumfjöllun um Huckabee mestmegnis verið jákvæð, en eftir að honum skaut í fremstu röð frambjóðenda hafa fréttamenn tekið að spyrja hann erfiðari spurninga. Huckabee hefur þannig verið krafður útskýringa á ýmsum fyrri yfirlýsingum og ákvörðunum hans í embætti fylkisstjóra Arkansas.
Á laugardag rifjaði The New York Post og AP fréttastofan meðal annars upp að árið 1992 hafi Huckabee lagt til að alnæmismituðu fólki yrði smalað saman í sóttkví þar sem einangra mætti það frá öðru fólki. Þá kvaraði hann undan því að of miklu af almannafé væri eytt í rannsóknir á alnæmi.
Huckabee hefur síðan, nú síðast í Fox News Sunday, morgunþætti kapalfréttastöðvarinnar FOX á sunnudagsmorgun, staðhæft að þegar hann lét þessi ummæli falla hafi hvorki hann né aðrir vitað mikið um eðli alnæmis eða smitleiðir. Eins og Chris Wallace, þáttastjórnandi Fox benti á, er sú staðhæfing er röng, því 1992 var það almenn vitneskja að alnæmi smitaðist ekki með venjulegri umgengni, og almenningi stafaði engin hætta af alnæmismituðu fólki.
Sjá má upptöku af skoðanaskiptum Huckabee og Chris Wallace á FOX hér:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=GbL5Z-2ym4Y]
Margir fréttaskýrendur telja að hljóti Huckabee tilnefningu Repúblíkanaflokksins muni demokratar eiga auðveldan leik að sigra hann í forsetakosningunum. Bent hefur verið á að Huckabee hafi litla sem enga reynslu af landsstjórnmálum og hafi gengið ílla við fjársöfnun. Þá er bent á að þó Huckabee njóti stuðnings margra evangelista og trúaðra íhaldsmanna, skorti hann stuðning mikilvægra afla innan Repúblíkanaflokksins.
Fylgi frambjóðendanna samkvæmt könnun McClatchy og MSNBC
Frambjóðendur demokrata
Iowa
Hillary Clinton 27%
Barack Obama 25%
John Edwards 21%
New Hampshire
Hillary Clinton 30%
Barack Obama 27%
John Edwards 10%
Suður Karólína
Hillary Clinton 28%
Barack Obama 25%
John Edwards 18%
Frambjóðendur repúblíkana
Iowa
Mike Huckabee 32%
Mitt Romney 20%
Fred Thompson 11%
New Hampshire
Mitt Romney 25%
Rudy Giuliani 17%
John McCain 16%
Suður Karólína
Mike Huckabee 20%
Rudy Giuliani 17%
Mitt Romney 15%
Skekkjumörk í könnuninni eru +/- 5%
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is