Sunnudagur 09.12.2007 - 09:40 - Ummæli ()

Opinber rannsókn hafin á eyðingu pyntingarmyndbanda CIA

hayden.jpgDómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna og yfirstjórn CIA hafa hafið opinbera rannsókn á því hvers vegna myndböndum með nokkur hundruð klukkustunda upptökum af harkalegum yfirheyrslum yfir tveimur háttsettum liðsmönnum al-Kaída var eytt. Myndböndin sýndu starfsmenn CIA m.a. beita vatnspyntingum við yfirheyrslurnar yfir Abu Zubaydah and Abd al-Rahim al-Nashiri. Upptökunum var var eytt 2005.

Í New York Times í dag segir að upplýst sé nú hver hafi fyrirskipað eyðingu á upptökunum. Það hafi verið Jose A. Rodriguez Jr., sem var yfirmaður innanlandsdeildar hjá CIA fram til 2005. Rodriguez kveðst hafa fengið samþykki lögfræðinga innan þeirrar deildar fyrir eyðingunni.

Embættismenn hafa sagt undanfarna daga, að yfirlögfræðingar bæði Hvíta hússins og Dómsmálaráðuneytisins hafi mælst til þess að myndböndunum yrði ekki eytt.

Mike Hayden, yfirmaður CIA hefur sagt að nauðsynlegt hafi verið að eyða upptökunum til að ekki yrði upplýst um nöfn viðkomandi leyniþjónustufulltrúa.

Demókratar á Bandaríkjaþingi hafa gagnrýnt eyðingu myndbandanna harkalega. Þeir segja myndböndin hafa sannað lögbrot, að ólöglegar pyntingar hafi viðgengist og að eyðing bandanna sé einnig lögbrot.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is