Þriðjudagur 11.12.2007 - 10:02
- Ummæli
()
Bílsprengja við heimili Allawis
Bílprengja sprakk í sjálfsmorðsárás í nótt rétt utan við heimili Ayads Allawis, fyrrum forsætisráðherra Íraks og Salehs Mutlaqs, sem er einn stjórnmálaleiðtoga Súnníta í vesturhluta Baghdads í Írak. Tveir lögreglumenn létu lífið.
Sprengjan sprakk þar sem lögregluvörður var staðsettur utan við höfuðstöðvar stjórnmálaflokks Allawis. Þrettán manns slösuðust. Atvikið átti sér stað í útjaðri Græna svæðisins svokallaða.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is