Jarðakjálftahrina við Upptyppinga heldur áfram af fullum krafti
Jarðakjálftahrinan við Upptyppinga, norðan Vatnajökuls, hélt áfram af fullum krafti í morgun eftir smáhlé í nótt. Flestir eru skjálftarnir um 2 stig á Richter á um 11 til 14 kílómetra dýpi.
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að möguleiki á eldgosi sé fyrir hendi en mestar líkur eru á að hrinan hætti bara.
„Eins og virknin er núna, þá er ekkert sem bendir til að þetta sé að hætta, og við verðum að reikna með þeim möguleika að kvikuhreyfingar haldi áfram og komi upp á yfirborð.“
Verði af gosi segir Páll að um nýja tegund að aðdraganda sé að ræða, en um er að ræða hegðun sem ekkert hefur sést hér á landi áður. „Þetta kemur í undirhrinum og hver hrina virðist vera á nýjum stað. Þessi hrina er þannig austar en áður.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is