Miðvikudagur 12.12.2007 - 07:29 - Ummæli ()

Slakur árangur íslenskra nemenda í PISA-könnun skoðaður til hlítar

skoli2.jpgMenntaráð Reykjavíkur mun óska eftir að Námsmatsstofnun greini nánar árangur
reykvískra grunnskólabarna í PISA- könnuninni sem var kynnt nýlega. Óskað er eftir að í greiningunni komi fram staða allra grunnskóla í borginni og samanburður við landið allt í öllum greinum og svör nemenda við viðhorfaspurningum.

Menntaráð samþykkti líka á fundi síðastliðinn mánudag að skipa aðgerðahóp sem þegar í stað hæfi viðræður við menntamálaráðuneyti, menntastofnanir og skólaþróunarsamtök um samstarf til að styrkja kennsluhætti í námsgreinum þar sem íslenskir nemendur eru að dala.

Morgunblaðið greinir frá þessu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is