Einhliða evra gæti kallað á gagnaðgerðir eða uppsögn EES
Einhliða upptaka evru hér á landi, án skyldubundins samráðs við ESB eins og EES-samningurinn gerir ráð fyrir, gæti kallað á formlegar gagnaðgerðir og jafnvel uppsögn EES-samningsins gagnvart Íslandi, segir Árni Páll Árnason, alþingismaður í grein í Viðskiptablaðinu í dag. „Jafnvel þótt ekki kæmi til formlegra gagnaðgerða af hálfu ESB fer það ekki fram hjá neinum sem til þekkir að möguleikar ESB til að draga lappirnar í framkvæmd EES-samningsins og gera hann þannig óframkvæmanlegan, eru nokkurn veginn ótæmandi,“ segir Árni Páll og segir að auk þess mundi einhliða upptaka hafa í för með sér að gjaldeyrisvaraforða þjóðarinnar yrði sólundað til að kaupa evrur sem fengjust ókeypis með fullri aðild að ESB.
Árni Páll segir í greininni að þótt einhliða upptaka evru kunni að vera tæknilega möguleg sé hún pólitískt óhugsandi og efnahagslegt glapræði. „Efnahagslegar framfarir í landinu frá um 1990 hafa fyrst og fremst byggst á því að við höfum snúið baki við séríslenskum lausnum og skapað íslensku efnahagslífi sömu umgjörð og í samkeppnislöndum okkar, segir Árni Páll og bendir á að í nýlegri skýrslu Friðriks Más Baldvinssonar og Richard Portes sé bent á að enn eru fyrir hendi séríslenskar reglur og viðskiptahættir sem valda áhættuálagi á fjármögnun íslenskra fyrirtækja á alþjóðamarkaði. „Verkefni íslenskra stjórnmálamanna á sviði efnahagsmála er að reyna að draga úr þessum séríslensku furðufyrirbærum, en ekki að reyna að búa til nýjar sérlausnir sem eiga sér hvergi hliðstæðu nema í bláfátækum ríkjum á barmi borgarastyrjaldar,“ segir þingmaðurinn og klikkir út með þessari líkingu um stöðu íslenskra og heimild og atvinnulífs sem búa við krónuna. „Með nokkurri einföldun má líkja aðstöðu íslenskra fyrirtækja og heimila við að keppa í hundraðmetrahlaupi á gúmmískóm. Við getum annað hvort keypt okkur almennilega skó – eða keypt teiknibólur til að líma undir gúmmískóna,“ og er svo að skilja að einhliða upptaka evru jafnaðist á við að kaupa teiknibólur til að líma undir gúmmískóna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is