Fimmtudagur 13.12.2007 - 10:58 - Ummæli ()

Jafnmargar risaýtur til Íslands og afgangsins af Evrópu

yta.jpgÍslendingar hafa keypt tvær af þremur til fjórum risajarðýtum sem framleiðandinn Caterpillar selur að jafnaði á hverju ári til Evrópuríkja.

Fossvélar á Selfossi fengu sl. föstudag afhenta Caterpillar D11R jarðýtu frá Heklu og er ýtan nú nýtt til að ryðja efni ofan af brún Ingólfsfjalls. Fyrr í ár var sams konar ýta keypt til námavinnslu í Vatnsskarðsnámum við Krýsuík. Í verktakablaði Viðskiptablaðsins í dag segir jarðýtur af þessari gerð séu samtals 117 tonn að þyngd, fimm metra háar og 2,6 metrar séu frá jörð upp í efri hluta beltisins. Í blaðinu segir Ásmundur Jónsson, framkvæmdastjóri Vélasviðs Heklu, að þetta sé stærsta ýtan sem Caterpillar framleiðir og að forsvarsmenn Caterpillar hafi orðið „vægast sagt undrandi“ þegar þeir fengu aðra pöntunina frá Íslandi á sama árinu enda seljist að jafnaði aðeins þrjár til fjórar svona ýtur í allri Evrópu á ári.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is