Veðurofsinn felldi rafmagnsmastur í Hvalfirði
Lægðabandormurinn ógurlegi sem herjað hefur á landið undanfarna daga hefur valdið talsverðum usla í raforkukerfinu. Rafmagn fór víða af á Vesturlandi og truflanir urðu víða í fyrrinótt vegna bilana á Byggðalínu Landsnets. Rafmagn komst á víðast hvar skömmu síðar.
Einna verstu skemmdirnar á línunni urðu í Hvalfirði í fyrrinótt, þegar heil staurastæða Brennimelslínu, sem liggur frá Geithálsi upp í Hvalfjörð, brotnaði saman undan veðurofsanum, að því er kemur fram á vef Landsnets.
Stagað stálgrindarmastur, staur nr 115 í Þyrilsnesi í innanverðum Hvalfirði, brotnaði. Við þetta fóru út skáli 2 hjá Norðuráli í Hvalfirði, álag fór út hjá Ísal í Straumsvík og allt álagið hjá Járnblendiverksmiðjunni í Hvalfirði. Auk þessa fóru úr rekstri allar vélar í virkjun Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir frá því á Veðurvaktinni á netinu að veðurhamur hafi ekki farið svo illa með háspennumastur í mörg herrans ár, „en frægt var á sínum tíma þegar vindur grandaði Þjórsárlínu austur í sveitum skömmu fyrir jól 1972 (20. des minnir mig) og hafði í för með sér rafmagnsskömmtun í nokkra daga alveg fram í jólahaldið á aðfangadag.“
Hann segir að vindmælirinn á Þyrli þarna í grenndinni hafi mest farið í 36,6 m/s og mesta mælda hviðan hafi verið 56,7 m/s. „Finnskt olíuskip sem þarna liggur fyrir utan Olíustöðina í Hvalfirði og sætir færis að leggjast að bryggju að nýju fékk heldur betur að finna fyrir veðurhæðinni. Ég hef af því fregnir að um tveggja til þriggja klst skeið þessa nótt hafi vindmælir skipsins slegið samfyllt yfir 40 m/s þar sem það lá við legufæri á miðjum Hvalfirðinum, heldur ekki langt frá umræddri raflínu.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
