Hannes Smárason: Rógsherferð danskra fjölmiðla gegn Íslandi
Hannes Smárason, segir að danskir fjölmiðlar standi fyrir rógsherferð í garð Íslendinga. „Ég heyrði um daginn að einn ágætur maður hefði sagt að umræðan í okkar garð í Danmörku jaðraði við rasisma,“ segir Hannes í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið í dag. „Við værum á margan hátt í sömu stöðu og blökkumennirnir í Bandaríkjunum og eftir að Danirnir hættu að geta selt okkur myglað mjöl hefðu þeir verulegt horn í síðu okkar þegar við værum loksins farin að standa almennilega í lappirnar. Ég man ekki eftir að Íslendingar hafi að mati heimamanna gert nokkurn skapaðan hlut rétt í Danmörku síðastliðin tvö til þrjú ár. Og kann engar skýringar á því.“Þetta kemur fram þegar Hannes svarar spurningu Péturs Blöndal, blaðamanns, um hvort fasteignafélögin sem Baugur leggur inn í FL Group hafi verið of hátt metin miðað við markaðsaðstæður, eins danska viðskiptablaðið Børsen hefur haldið fram en Hannes vísar því á bug og segir að mat óháðra aðila og sérfræðiskýrslur liggi fyrir sem tali sínu máli.
Spurningu um eigin fjárhagsstöðu svarar Hannes þannig að hann standi „í sjálfu sér þokkalega.“ Ég keypti fyrstu bréf í félaginu á genginu 6 til 7, þannig að ég hef ávaxtað mitt pund vel frá árinu 2004 og myndað traustan fjárhagslegan grunn. Svo hafa aðrar fjárfestingar sem ég hef verið í fyrir utan FL Group gengið vel, þannig að ég hef breitt bak. Auðvitað koma sveiflur í hlutabréfavirði við fjárfesta, það gefur auga leið, en það er engan bilbug á mér að finna.“
Hannes vísar á bug gagnrýni á háan rekstrarkostnað FL Group og segir m.a.: „Í fyrsta lagi sitjum við uppi með eftirlaunaskuldbindingar allra fyrrverandi forstjóra Flugleiða í meira en þrjá áratugi, sem eru mjög íþyngjandi. Þeir sátu eftir inni í FL Group þegar Icelandair var selt.“
Hann segir að því fari fjarri að kostnaður félagsins vegna hans sjálfs hafi verið óhóflegur og segir að strípuð laun sín hafi verið 4 milljónir króna á mánuði, mun lægri en laun allra annarra forstjóra fimm stærstu fyrirtækja landsins. Hannes segist enga bónusa hafa þegið, engan kauprétt og „ég hef aldrei rukkað félagið um einn einasta hótelreikning eða útlagðan kostnað við gistingu eða uppihald eða neitt sem tengist slíkum hlutum. Mér er til efs að margir aðrir forstjórar hafi haft slíkt sem vinnureglu,“ segir Hannes Smárason.“Ég tók þá ákvörðun strax þegar ég varð forstjóri að semja um hóflegar greiðslur til mín fyrir þann þátt. Minn ávinningur var fyrst og fremst sá að vera fremstur meðal jafningja, út frá hlutabréfaeign, og þeim arði sem félagið greiddi. Og það hefur greitt góðan arð, ég get ekki kvartað undan því að hafa ekki haft úr miklu að moða enda þótt ég hafi ekki einu sinni verið hálfdrættingur forstjóra stærstu félaga landsins í launum og þar að auki án bónusa þeirra og kauprétta.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is