Elsti karl heims látinn – þakkaði langlífið því að hafa aldrei gifst
Elsti maður heims að talið er, Hryhoriy Nestor, lést aðfaranótt laugardagsins, 116 ára að aldri. Nestor var Úkraínumaður og bjó í þorpinu Stary Yarychev, þar sem hann var að sögn
aðstandenda virkur fram á síðasta dag, hjálpaði til með húsverkin og leit til með hænsnunum.
Þetta kemur fram á BBC.
Hann var líka hress á föstudaginn, en hellti yfir höfuð sitt köldu vatni nokkrum sinnum vegna höfuðverkjar, nokkuð sem hann gerði gjarnan.
Nestor fékk aldrei staðfest í heimsmetabók Guinnes að hann væri elstur allra, Bandaríkjamaðurinn Edna Parker, 114 ára, er skráð elst í heimi.
Ættingi Nestors, Oxana, segir að samkvæmt skjölum í eigu fjölskyldunnar hafi Nestor fæðst 15. mars 1891.
„Hann giftist aldrei af því hann var svo lítill vexti og átti aldrei neina peninga,“ segir Oxana.
Nestor hafði sagt að hann kærði sig ekki um neitt væl við útförina sína en aðeins örfáir ættingjar og vinir voru viðstaddir þegar hann var jarðaður og uppáhaldsmatur hans var borinn fram í erfidrykkjunni.
Eftir að Nestor lést fór kötturinn hans, Murchik, ekki í hornið sitt eins og hann var vanur, heldur lagðist í rúm húsbónda síns.
Nestor þakkaði langlífið því að hann hefði aldrei gifst.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is