Mánudagur 17.12.2007 - 09:58 - Ummæli ()

Ríkið dregur lappirnar í máli gagnvart olíufélögunum

56729186.jpgÍslenska ríkið hefur enn ekki lokið við bótakröfu á hendur olíufélögunum þremur vegna þess samráðs sem félögin viðhöfðu í viðskiptum við ríkið ár árunum 1993-2001. Fréttablaðið greinir frá því í dag að lögmanni ríkisins gangi illa að afla upplýsinga hjá stjórnvöldum um viðskipti við olíufélögin en þær upplýsingar eru nauðsynlegt til þess að unnt sé að ljúka kröfugerðinni og leggja málið fyrir dómstóla.

Fyrst og fremst er um að ræða upplýsingar um viðskipti Landhelgisgæslunnar, lögreglunnar og Vegagerðarinnar við olíufélögin og segir Fréttablaðið að líklegt megi telja að bótakrafan nemi tugum ef ekki hundruðum milljóna króna.

Blaðið ræðir við Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sem segir nauðsynlegt að kanna hvers vegna svo langur tími hafi liðið án þess að málið sé leitt til lykta. „Það er óþolandi fyrir skattborgarana að þetta taki svona langan tíma og mér finnst eðlilegt að kannað sé hvað veldur,“ er haft eftir Björgvin.

Fyrir liggur að olíufélögin höfðu samráð og varð það upplýst með rannsókn samkeppnisyfirvalda sem lauk með því að félögin voru sektuð um 1,5 milljarða króna. Lögmenn félaganna hafna því hins vegar að þau hafi orðið bótaskyld gagnvart ríkinu og telja ekki sannað að samráðið hafi haldið ríkinu fjárhagstjóni.  Fréttablaðið greinir frá því að þær upplýsingar hafi fengist í samgönguráðuneytinu í ágúst á síðasta ári að líklega væri tjón vegagerðarinnar vegna samráðsins um 178 milljónir króna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is