Þriðjudagur 18.12.2007 - 16:24 - Ummæli ()

Bretar herða reglur um innflytjendur og ferðamenn

airport.jpgNýjar reglur um landvistarleyfi fyrir útlendinga eru í undirbúningi í Bretlandi. Í stað þess að mega hafa viðdvöl í landinu í sex mánuði eins og verið hefur fá útlendingar nú leyfi til að vera í þrjá mánuði.

Fjölskyldum, sem fá heimsóknir ættingja utan Evrópubandalagsins, verður í vissum tifellum gert að greiða tryggingarfé fyrir gesti sína og sjá til þess að þeir yfirgefi landið innan tímamarkanna.

Stjórnvöld segja þetta ekki muni eiga við um alla heldur eingöngu þá sem stjórnvöld telji til „áhættu“-hópa.

Innflytjendur hafa kvartað og segja þetta geta komið sér mjög illa fyrir fátækar fjölskyldur, en reglurnar eiga að beinast að þeim sem viljandi brjóta af sér með því að vera of lengi eða vinna ólöglega í landinu.
Ekki hefur verið ákveðið hver tryggingarupphæðin verður en getgátur eru um 1.000 pund.

Í viðbót við venjulega ferðamannaáritun hyggst stjórnin kynna annarskonar áritanir sem munu gilda fyrir sérstakar uppákomur, eins og til dæmis Ólympíuleikana 2012.

Þetta er tilkynnt um leið og ríkisstjórnin segist hafa safnað meira en milljón fingraförum frá útlendingum sem sækja um landvistarleyfi.
Ráðherra innflytjendamála, Liam Byrne, segir harðara öryggiseftirlit halda „hættulegu“ fólki í burtu.
„Frá og með næsta vori munum við skoða fingraför allra þeirra sem biðja um landvistarleyfi og munum fara fram á tryggingafé að auki – ekki fyrir alla, en þá sem við teljum ekki treystandi.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is