ÍAV: Pólskir starfsmenn biðja um minna lambakjöt
Pólskir starfsmenn Íslenskra aðalverktaka gera athugasemdir við að þeir fái of oft lambakjöt og fisk í matinn á vinnustaðnum. Að öðru leyti eru þeir ánægðir í starfi og gefa fyrirtækinu einkunnina 8 af 10 mögulegum, segir í frétt frá fyrirtækinu, sem gerði könnun á viðhorfum 150 pólskra starfsmanna sinna til fyrirtækisins og þeirrar aðstöðu sem hún býr þeim.
Könnunin var gerð með þremur rýnihópum sem pólskumælandi, óháður sérfræðingur stýrði. „Meðal þess sem tekið var fram var ánægja með hversu framarlega fyrirtækið stendur þegar kemur að tækninýjungum, metnaðarfull verkefni fyrirtækisins og góður starfsandi. Þá var einnig almenn ánægja með aðbúnað, bæði í vinnu og það húsnæði sem þeim er skaffað, en meirihluti mannanna býr í búðum ÍAV á varnarsvæðinu gamla við Keflavík,“ segir í frétt fyrirtækisins. „Eins og vera ber var einnig ýmislegt sem kom í ljós að betur mætti fara að mati pólverjanna. Þeim fannst maturinn t.d. of íslenskur, eins og þeir komust að orði, þ.e. of mikið um fisk og lambakjöt.“
Stjórnendur fyrirtækisins segjast ætla að taka fullt mark á þessum ábendingum og koma til móts við matarþarfir starfsmannanna og vinna að því að „bæta enn frekar hag og aðbúnað erlendra starfsmanna sinna“.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is