Afskipti Hvíta hússins af eyðingu myndbandanna meiri en sagt var
Að minnsta kosti fjórir háttsettir lögmenn Hvíta hússins tóku þátt í umræðum með fulltrúum leyniþjónustunnar CIA um hvort eyða skyldi myndbandsupptökum af yfirheyrslum yfir tveimur Al-Qaeda liðum á árinum 2003 til 2005.
Í frétt New York Times af málinu í dag þetta bendi til þess að afskipti Hvíta hússins af málinu hafi verið umfangsmeiri heldur en embættismenn Bush stjórnarinnar hafi hingað til viljað viðurkenna.
Upptökunum var eytt í nóvember árið 2005. Þeir lögmenn Hvíta hússins sem ræddu málið við CIA voru Alberto R. Gonzales, sem var lögmaður Hvíta hússins þar til snemma árs 2005; David S. Addington, sem þá var lögmaður Dicks Cheneys varaforseta en er nú starfsmannastjóri hans; John B. Bellinger III, sem var aðallögfræðingur bandaríska Þjóðaröryggisráðsins; og Harriet E. Miers, sem tók við af Gonzales sem lögmaður Hvíta Hússins.
Áður höfðu embættismenn sagt að nokkrir embættismenn stjórnarinnar hefðu á sínum tíma ráðið CIA frá því að eyðileggja upptökurnar. Í viðtölum New York Times við hlutaðeigandi er dregin upp öllu flóknari mynd af umræðunum. Menn virðist til dæmis greina á um það hvort einhver innan Hvíta hússins hafi lýst stuðningi sínum við eyðingu myndbandanna. Þannig segi einn leyniþjónustumannanna, sem þekkir beint til málsins, að meðal sumra æðstu embættismanna Hvíta hússins hafi gætt ákafa í að eyða upptökunum. Hann nefndi engin nöfn en sagði að óttast hefði verið árið 2005 að birting á upptökunum myndi vera sérstaklega skaðleg í kjölfar uppljóstrana áður áður um meðferð fanga í Abu Ghraib fangelsinu í Írak.
Aðrir embættismenn sem blaðið ræddi við staðhæfa að enginn innan Hvíta hússins hafi mælt með eyðingunni, en viðurkenna þó um leið, að enginn lögmanna Hvíta hússins hafi heldur gefið bein fyrirmæli um varðveislu á upptökunum, né slegið þann varnagla að eyðing þeirra varðaði við lög.
Málið er nú til sérstakrar rannsóknar hjá Dómsmálaráðuneytinu. Alríkisdómari hefur fyrirskipað vitnaleiðslur til þess að grafast fyrir um það hvort eyðingin braut beinlínis í bága við skipun sem gefin hafði verið um varðveislu sönnunargagna í máli sem höfðað var af hálfu 16 fanga í Guantanamo fangelsinu á Kúbu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is