Leikmaður Man.Utd í haldi vegna nauðgunarkæru
Jonathan Evans, 19 ára varnarmaður í liði Manchester United, er í haldi lögreglu í Manchester vegna kæru konu sem segir að sér hafi verið nauðgað í jólapartíi leikmanna liðsins, sem fram fór á hóteli í Manchester, á mánudag.
Breska dagblaðið The Sun nafngreinir leikmanninn og segir að þar sé um að ræða Jonathan Evans, sem hefur leikið nokkra leiki með aðalliði Man. Utd á þessu keppnistímabili en var í láni hjá Sunderland á síðasta keppnistímabili. Í Daily Mail er frá því sagt 26 ára kona hafi kært Jonathan Evans fyrir að hafa nauðgað sér á salerni á hótelinu. Hún hafi verið mjög drukkin og hafi verið boðið í veisluna með kærasta sínum.
Bresku blöðin fjalla ítarlega um málið og veisluna sem þau segja að hafi verið mikil drykkjuveisla sem staðið hafi yfir til klukkan rúmlega fjögur á þriðjudagsmorgun. Fjölda ungra kvenna hafi verið boðið til veislunnar.
Evans gaf sig fram við lögreglu í gær og er í haldi vegna rannsóknar málsins.
Myndin er tekin af Evans í fyrsta leik hans með aðalliði Man. Utd á móti Coventry í september sl.: NordicPhoto/Getty
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is