Gullhornaþjófar dæmdir í fangelsi – mamma annars alveg spindegal
Tveir menn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir að stela gullhornunum sem stillt
hafði verið upp í sýningarsal hins konunglega Jelling í september síðastliðinum.
Sonni Svensson, 22 ára gamall, var dæmdur í tveggja ára og fjögurra mánaða fangelsi, og hinn 25 ára gamli Serkan Barut fékkk tvö ár fyrir þjófnaðinn. Þriðji aðilinn í málinu, móðir
Svenssons, slapp með skrekkinn en hún var ákærð fyrir að vera meðsek þar sem hún geymdi þýfið á loftinu heima hjá sér.
Sonni Svensson segir að hann hafi leiðst út í þjófnaðnn vegna 25.000 króna skuldar, en maðurinn sem hann skuldaði hvatti hann til að framkvæma verknaðinn og lofaði að þeir Svensson væru kvitt ef hann fengi gullhornin.
Dómarinn keypti ekki þessa sögu Svenssons og var viss um að Svensson og Barut hefðu sjálfir planað þjófnaðinn. Svensson hefur mörg innbrot á samviskunni, en hann segist ekki hafa gert sér grein fyrir hversu stór þessi þjófnaður var.
„Ég skildi það fyrst þegar ég heyrði fréttirnar daginn eftir,“ segir Svensson, og mamma hans, sem hélt fyrst að hann hefði komið með gömul föt til að geyma á loftinu, varð alveg „spindegal“.
Hún segist hafa ætlað að skila hornunum þegar málið væri aðeins farið að róast, segir í Berlingske Tidende.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is