Föstudagur 21.12.2007 - 07:52 - Ummæli ()

Óveður undir Hafnarfjalli – vegir auðir um mest allt land

hafnarfjall11.jpgVegagerðin varar við óveðri undir Hafnarfjalli, en Veðurstofan segir segir skil vera að fara yfir. Vindhviður geti náð 38 metrum á sekúndu undir Hafnarfjalli en búist er við að veður gangi niður á næstu klukkutímum.

Vegir eru  auðir um mestallt land en þoka er á Hellisheiði.

Þá segir á vef Vegagerðarinnar að hraði sé enn takmarkaður við 50 km/klst á veginum um Eyrarhlíð á milli  Ísafjarðar og Hnífsdals meðan unnið er að því að hreinsa í kring um veginn eftir skriðuföll undanfarið


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is