Mánudagur 24.12.2007 - 12:41 - Ummæli ()

Innfluttir gyðingar til Ísraels ekki færri í 20 ár

1166667.jpgAðeins 20.000 gyðingar hafa flust til Ísraels á þessu ári og hafa þeir ekki verið færri undanfarin 20 ár. Ísraelsk stofnun sem vinnur að því að fá gyðinga til að flytjast til landsins segir að stöðugt dragi úr aðdráttarafli Ísraels í augum gyðinga.

Lögggjöf í Ísrael gerir ráð fyrir því að allir gyðingar, makar gyðinga, börn og barnabörn geti orðið ríkisborgarar í landinu.  Stöðugur straumur innflytjenda er ríkur þáttur í þeirri stefnu að Ísrael eigi sér tilverurétt sem sérstakt ríki gyðinga. Zeev Bielsky, yfirmaður innflytjendastofnunarinnar í Ísraels, segir að mikill hagvöxtur í Rússlandi sé eitt af því sem dregið hefur úr fjölda innflytjenda. Einnig finni gyðingar til aukins öryggis í Frakklandi eftir að Nicolas Sarkozy, sem átti gyðinga fyrir afa og ömmu, var kjörinn forseti.

Ísraelsríki var stofnað 1948 og flestir borgarar þess eru komnir af gyðingum sem áður tilheyrðu Diasporunni svokölluðu, þ.e. gyðingum utan Ísraels, en sneru til lands forfeðra sinna á 20. öldinni á flótta undan ofsóknum sem þeir bjuggu við í Evrópu og Mið-Austurlöndum.  Þó er rúm milljón af borgurum Ísraelsríkis múslimar og kristnir arabar og er hlutfall þess hóps vaxandi meðal þjóðarinnar sem alls telur um sjö milljónir manna. Þá eru ótaldar þær fjórar milljónir Palestínumanna sem búa ríkisfangslausar á herteknum svæðum Ísraelsmanna á Vesturbakka Jórdan-ár og á Gaza-svæðinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is