50% líkur á að synir fylgi í fótspor feðra sem fara í meðferð á Vogi
50% líkur eru á því að synir karlmanna, sem lagst hafa inn á sjúkrastöðina Vog, eigi sjálfir eftir að leita sér þar meðferðar áður en þeir ná sjötugsaldri. Þetta kom fram hjá Þórarni Tyrfingssyni, yfirlækni og formanni SÁÁ, á blaðamannafundi í dag.
Fundurinn var haldinn í tilefni af samningi sem Reykjavíkurborg og SÁÁ hafa gert en samkvæmt samningnum styrkir borgin starfsemi SÁÁ um 55 milljónir króna næstu þrjú árin. SÁÁ hyggst nýta peningana í rekstur göngudeildar í Efstaleiti 7, forvarnarstarfs í samfélaginu, skólum og stofnunum Reykjavíkurborgar og annarrar þjónustu SÁÁ við Reykjavíkurborg, m.a.þjálfunar meðferðaraðila í viðtalstækni og ráðgjafar í tengslum við verkefnið Grettistak.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is