Föstudagur 28.12.2007 - 07:35 - Ummæli ()

Margir leita aðstoðar á Vogi í byrjun nýs árs

toti-tyrfings.jpgBúist er við að mikill fjöldi fólks leiti hjálpar á Vogi í byrjun janúar. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir í 24 stundum að á þessum tíma sé alltaf mikill fjöldi sem leitar sér aðstoðar vegna áfengisneyslu og þeim fjölgi sem vilji komast í meðferð í byrjun árs.

Yfirleitt komi upp einhver vandamál og krísa sem reki fólk af stað, en nýtt ár sé líka ný byrjun, nýtt líf og nýjar vonir. Fólk ákveði þá að staldra við um áramót og reyna að snúa við blaðinu og hætta áfengisneyslu. Ekki er hægt að taka á móti öllum þeim sem leita hjálpar strax svo einhverjir verða á biðlistum eftir að komast inn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is