Fimmtudagur 03.01.2008 - 07:37 - Ummæli ()

Fannst látinn við Elliðavog

landsb.jpgPilturinn sem á annað hundrað björgunarsveitarmenn höfðu leitað að í Reykjavík frá því á nýársdag fannst látinn skammt frá smábátahöfninni í Elliðavogi seint í gærkvöldi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.

Hann hét Jakob Hrafn Höskuldsson, 19 ára, til heimilis að Bröndukvísl 14 í Reykjavík.

Leit hófst þegar Jakob Hrafn skilaði sér ekki heim af áramótadansleik á  Broadway.

jakob-hrafn.JPG

Í gærkvöldi fór gríðarlega umfangsmikil leit fram um höfuðborgarsvæðið og fór þungi hennar fram í grennd við Elliðaárdalinn en einnig gengu björgunarsveitarmenn um hverfi í austanverðri borginni og leituðu í görðum og á opnum svæðum.

Í Morgunblaðinu kemur fram að lík piltsins hefði fundist á níunda tímanum í Elliðavogi. Rannsókn málsins væri á frumstigi hjá lögreglu.



«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is