Íranskir varðbátar „áreittu og ógnuðu“ bandarískum herskipum
Bandaríska varnarmálaráðuneytð segir að fimm varðbátar Íranska byltingarvarðarsins hafi „áreitt“ þrjú bandarísk herskip og „ögrað“ þeim á Hormuz sundi síðdegis á laugardag.
Skipun var gefin um að skjóta á írönksu varðbátana, sem þá hörfuðu. Engum skotum var hleypt af, samkvæmt fréttum á CNN.
Samkvæmt frétt MSNBC segja embættismenn að atvikið hafi falið í sér „verulega ögrun“ og hafi átt sér stað þegar tveir bandarískir tundurspillar og ein freigáta hafi verið að sigla inn í Persaflóa um Hormuz sund. Fimm vopnaðir hraðbátar Íranska byltingarvarðarsins hafi komið og siglt á miklum hraða inní bandaríksu herskipafylkinguna.
„Þið munuð springa í loft upp innan nokurra mínútna,“ sögðu Íranirnir um talstöð. Herskipin fóru í varnarstöðu og sendu frá sér hefbundin skilaboðtil bátanna að víkja af leið. Engum skotum var hleyptaf. Fulltrúar bandaríkjahers segja að heskipin telji að varðbátarnir hafi verið að prófa varnarviðbrögð Bandaríkjamanna.
Bandaríkjamenn lýstu áhyggjum sínum á því fyrir fimm mánuðum þegar sveitir Íranska byltingarvarðarins tóku við stjórn sjóhernaðar á þessu svæði af hefðbundnum flota Írana.
Þessar sömu varðbátaveitir tóku 15 breska sjóliða til fanga í mars 2007 og héldu þeim í tvær vikur.
George Bush, Bandaríkjaforseti heldur til nokkurra Miðausturlanda á morgun til að ýta á eftir friðarumeitunum milli Ísraelsmanna og Araba sem hrundið var af stað í Annapolis. Hann sagði í viðtali við ísraelskt dagblað á föstudag að ein ástæða fararinnar væri „að gera þjóðunum í þessum heimshluta það fulljóst að við lítum á Íran sem ógnun og að nýleg niðurstaða í mati leyniþjónustustofnana drægi í engu þar úr, heldur gerði hana í raun ljósari.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is