Ridley Scott gerir kvikmynd um leiðtogafundinn í Reykjavík 1986
Mikhail Gorbachev var spurður um það í nýlega hvernig hefði staðið á því, að þegar hann komst til valda hafi Sovétríkin verið kommúnistaríki, en eftir valdatíð hans hafi hvorki kommúnismi né Sovétríkin sjálf verið þar lengur við lýði. Hver var vendipunkturinn?
Gorbachev svaraði að bragði, „Ó, það var Reykjavík.“
Svo segir Ken Adelman, fyrrum sendiherra Bandaríkjamanna hjá Sameinuðu þjóðunum og yfirmaður bandarísku vopnaeftirlitsstofnunarinna. Adelman er meðframleiðandi Ridley Scotts og fyrirtækis hans, Scott Free Productions, að kvikmynd um Reykjavíkurfundinn sem nú hefur verið ákveðið að hefja tökur á um mitt þetta ár.
Adelman var náinn samstarfsmaður Ronalds Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta, á hinn sögufræga Reykjavíkurfund í Höfða með Gorbachev haustið 1986.
„Ég fékk það einstæða tækifæri að taka þátt í sögulegri stund og vinna þarna náið með Ronald Reagan sem sérfræðingur í samningum um takmörkun gereyðingavopna. Þetta var sannarlega magnþrungið,“ er haft eftir Adelman í tilkynningu sem birt er í dag um gerð myndarinnar. “
Í myndinni verður farið í smátriðum í fund leiðtoganna í Höfða, sem á einni helgi hratt af stað atburðarrás, sem leiddi að lokum til útrýmingar heils flokks kjarnorkuvopna, hruns Sovétríkjanna og endaloka kalda stríðsins.
Fulltrúar kvikmyndafyrirtækisins Scott Free Productions komu hingað til lands í september sl. að sögn Leifs B. Dagfinnssonar hjá kvikmyndafyrirtækinu Truenorth, sem hefur haft milligöngu í málinu. „Þáverandi borgarstjóri Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Jón Kristinn Snæhólm buðu þeim á fund í Höfða og hétu 100% samvinnu borgarinnar og öllum nauðsynlegum afnotum af húsinu sjálfu.“ Þeir áttu líka fund með Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra og var vel tekið.
„En það er ljóst,“ segir Leifur, „að til þess að hægt sé að endurskapa og nýta sér raunverulegar staðsetningar og taka myndina að miklu leyti hér, en ekki bara 1-2 tökudaga, þá telja framleiðendurnir að það þurfi að hækka endurgreiðsluprósentuna, sem erlend kvikyndafyrirtæki njóta hér, upp í 20%.“ Leifur segir að efni myndarinnar sé okkur það skylt, að það sé „bara skylda okkar að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að þetta verði hægt.“
Nú fá erlend kvikmyndafyrirtæki endurgreidd 14% af þeim kostnaði sem fellur til við gerð mynda sinna hér á landi.
„Þetta er spennandi verkefni vegna þess að nær að fanga sögulegt augnablik þeirra atburða sem leiddu til endaloka kalda stríðsins,“ segir Ridley Scott. „Myndin mun gefa einstaka innsýn í líf þessara tveggja manna, Ronalds Reagans og Mikhails Gorbachevs, á miðju sviði heimsmálanna þessa köldu októberhelgi í Reykjavík.“
Dramatískar senur myndarinnar munu spanna sviðið „frá hinu fáránlega til hins guðdómlega“ og sýna m.a. furðuleg uppátæki starfsmanna KGB og CIA í kjallaranum í Höfða og hin oft á tíðum hakarlegu átök fulltrúa Bandaríkjamanna og Sovétríkjanna á næturfundum þeirra.
Ridley Scott er einn fremsti kvikmyndaleiksstjóri heims. Hann hefur þrisvar verið tilefndur til óskarsverðlauna fyrir „Black Hawk Down“ (2002) sem hlaut tvenn óskarsverðlaun, „Gladiator“ (2001) sem hlaut fimm og „Thelma and Louise“ (1992).
Nýjasta mynd hans „American Gangster“, með Denzel Washington og Russell Crowe hlaut lof gagnrýnenda sem ein besta mynd ársins 2007.
Nú standa yfir viðræður við þekkta handritshöunda um að klára lokaútfærslu á handriti myndarinnar sem og leikstjóra þar á meðal að Ridley Scott sjálfan.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is