Mánudagur 07.01.2008 - 07:38
- Ummæli
()
Settar verða reglur um gjafir til embættismanna
Í framhaldi af fréttum um að Kaupþing hafi gefið starfsmönnum Fjármálaeftirlitsins vínflösku í jólagjöf ætlar Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra að láta setja skýrar reglur um gjafir til opinberra starfsmanna og verður fundað um málið í fyrsta skipti í dag í viðskiptaráðuneytinu.
Fréttablaðið skýrir frá málinu í frétt þar sem segir að reglur viðskiptaráðherra eigi einnig að gilda um stjórnmálamenn.
Í samtali blaðsins við Björgvin kemur fram að hann telji ekki nauðsynlegt að áminna forstjóra Fjármálaeftirlitsins fyrir að hafa þegið gjafirnar.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is