Fimmtudagur 10.01.2008 - 04:02 - Ummæli ()

Bill Richardson hættir framboði

richardsonclinton.jpgBill Richardson, ríkisstjóri New Mexico, hefur ákveðið að hætta að sækjast eftir útnefningu Demókrataflokksins til forsetakosninganna. Hann komst að þessari niðurstöðu í gær eftir að hafa lent í fjórða sæti í tveimur forkosningum, í Iowa og New Hampshire.

Richardson er sagður ætla að tilkynna ákvörðun sína opinberlega í dag.

Richardson hefur að líkindum víðtækustu stjórnmálareynslu allra frambjóðenda. Hann hefur setið á þingi, var ráðherra í ríkisstjórn Clintons, þingmaður á ríkisþingi New Mexico og sendiherra. Öll þessi reynsla hefur þó ekki dugað honum til að yfirvinna fjölmiðlahylli mótframbjóðendanna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is