Íranar segja ekkert óvenjulegt við atvikið á Hormuz sundi
Ali Hosseini, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins segir atvikið á Hormuzsundi um síðustu helgi hafi verið alvanalegt. Íranska ríkissjónvarpið sýndi í dag myndband sem íranskir sjóliðar Byltingarvarðarsins tóku þegar varðbátar þeirra höfðu afskipti af skipum bandaríska sjóhersins og sem Íranir segja sönnun þess að ekkert óeðlilegt hafi komið upp á.
Þar sést yfirmaður krefja skipin um upplýsingar um hver þau séu og hvert ferð þeirra sé heitið eins og venjan sé við slíkar aðstæður.
Bæði George Bush bandaríkjaforseti og Condoleezza Rice utanríkisráðherra hafa varað Írana við alvarlegum afleiðingum þess ef ráðist verður á skip þeirra á alþjóðlegum siglingaleiðum.
Bandaríska varnarmálaráðuneytið birti mynd- og hljóðupptökur af atvikinu á þriðjudag, sem þeir segja staðfesta að varðbátarnir hafi siglt í kringum herskipin og hótað í gegnum talstöð að skipin yrðu sprengd í loft upp.
Íranir segja að bandaríska myndbandið sé gamalt og hljóðupptökurnar falsaðar.
Íranska myndbandsupptakan:
[liveleak 8f6_1199959765]
AP frétt um málið:
[clipsyndicate 488103?wpid=1904]
Frétt Íranska sjónvarpsins PressTV um málið:
[liveleak 9bb_1199903953]
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is