Föstudagur 11.01.2008 - 10:43 - Ummæli ()

Danskir bar- og veitingahúsaeigendur kveinka sér undan reykingabanni

cigarettes.jpgDanskir veitingastaðir, kaffihús og barir segja sölu hafa dregist saman um 20-30% eftir að
reykingabann gekk í gildi í fyrra.
Ekki er lengur hægt að skreppa á barinn og fá sér reyk með drykknum og nú lítur helst út fyrir að reykingamenn hafi tekið til sinna ráða og mæti einfaldlega ekki á barina lengur segir á 180grader.

Samtök veitingahúsaeigenda (DRG) segja samdráttinn 20-30% á þeim fimm mánuðum sem liðnir eru af reykingabanninu og það eru ekki bara DRG sem kvarta heldur hafa Carlsberg-verksmiðjurnar tilkynnt um mikinn samdrátt.

„Hjá sumum er tapið dramatískt vegna nýrra reglna, og almennt hefur bannið haft neikvæð áhrif á sölu,“ segir Tørk Furhauge, sölustjóri Carlsberg, í viðtali við Ritzau. „Mest verður vart við tapið í miðbæjum stórra borga.“

Eins dauði er þó jafnan annars brauð og eigendur veitingastaða sem eru minni en 40 fermetrar segjast hafa aukið söluna um 10% en á slíkum stöðum eru reykingar enn leyfilegar.

Þeir hjá Carlsberg búast líka við að salan aukist þegar viðskiptavinir hafa vanist banninu og benda á Írland í því sambandi. DRG tekur ekki undir þá bjartsýni.

„Á Írlandi er drykkjumenningin allt önnur, þar fara menn á krána í eftirmiðdaginn. Í Danmörku höldum við okkur frekar heima svo það tekur lengri tíma að venjast þessu hér. Á Írlandi dróst salan á börunum aðeins saman um 6% fyrsta hálfa árið eftir reykingabannið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is