Rúmlega hundrað þúsund Kínverjar létust í vinnuslysum á síðasta ári
Rúmlega hundrað þúsund Kínverjar létu lífið í vinnuslysum á síðasta ári, þar með taldir þeir sem vinna að vegagerð og við járnbrautirnar.
Li Yizhong, forstjóri Vinnueftirlitsins, segir 101.480 manns hafa látist, en aðgerðir stjórnvalda um aukna menntun og herferðir gegn slysum hafi haft jákvæð áhrif.
„Öryggismál eru í þróun og hafa smám saman breyst til batnaðar,“ er haft eftir Li á vefsíðunni www.gov.cn.
Slysum fækkaði mest í kolanámum og við vegavinnu, sagði Li, en hvergi eru fleiri dauðsföll í kolanámum en í Kína. Þar láta verkamenn lífið nánast daglega þar sem námueigendur þrjóskast við að hafa öryggisbúnað í lagi til að halda kostnaði í lágmarki.
Þrátt fyrir hertar öryggisreglur er tala látinna á síðasta ári óviðunandi, sagði Zhou Yongkang, fyrrverandi forstjóri öryggismálastofnunar í Kína.
Náttúruhamfarir, eins og flóð og aurskriður, tóku líka stóran toll í mannslífum í fyrra þar sem 2.325 manns létust. Þá eyðilögðust hátt í ein og hálf milljón húsa og mikið ræktarland er ónýtt.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is