Sunnudagur 13.01.2008 - 12:03 - Ummæli ()

Eiffelturninn í hættu vegna hryðjuverka?

effel.jpgFrönsk stjórnvöld rannsaka nú hótun hryðjuverkamanna um árás á París, meðal annars Eiffelturninn.

Portúgalskir flugumferðarstjórar töldu sig heyra hótunina í stuttbylgjuútvarpi
á fimmtudaginn, en franska dagblaðið Le Monde vitnaði í samtal við lögregluna á föstudag þar sem staðfest var að sérfræðingar væru að rannsaka samtalið.

Fréttastofa AP segir einnig hótunina óljósa en þó sé ekki hægt að horfa fram hjá henni. Þá er verið að skoða hótanir um árásir á íslömskum heimasíðum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is