Þriðjudagur 15.01.2008 - 09:42 - Ummæli ()

Rannsakað hvort „fíknefnabarónar“ skipulögðu árásina

logr.jpgÁkveðið verður í dag hvort farið verður fram á, að Liháarnir fimm sem handteknir voru fyrir árás á fjóra fíkniefnalögreglumenn fyrir helgi, verði áfram í gæsluvarðhaldi.

Samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag beinist rannsóknin m.a. að því að upplýsa hvort um skipulagða atlögu að götuhóp fíkniefnadeildarinnar hafi verið að ræða. Fíkniefnalögregludeildin hafði ekki haft afskipti af Litháunum fyrir árásina en a.m.k. einn þeirra hafði áður verið handtekinn fyrir að ráðast að lögreglumönnum.

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra velti því fyrir sér á vefsíðu sinni um helgina hvort „fíkniefnabarónar“ hafi „gert erlenda málaliða sína út af örkinni gegn lögreglumönnunum.“

Lögreglumaður sem þekkir til málsins sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þetta hefðu ekki verið „venjulegir verkamenn“ heldur bæði haft talsverða líkamsburði og beitt aðferðum í átökunum sem aðeins væru á færi vanra manna.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent málsgögnin til ríkissaksóknara.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins vinna tveir mannanna hjá sama vinnuveitanda, JB byggingafélagi. Engilbert Runólfsson, forstjóri JB byggingafélags, sagðist samtali við Morgunblaðið ekki hafa vitað af því og harma mjög að mennirnir hefðu tekið þátt í árásinni. „Þetta er algjörlega glórulaust og það er alveg klárt að þeir verða ekkert í vinnu hjá okkur meira.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is