Starfsmenn 365 fá 10 kr afslátt af bensínlítranum hjá Skeljungi
Starfsmenn 365 hf. bættust á föstudag í hóp útvalinna viðskiptavina Skeljungs sem fá eldsneyti á lægra verði en almennir viðskiptavinir. Starfsmenn 365 fá 10 króna afslátt á hvern lítra í sjálfsafgreiðslu, að því er kemur fram í frétt 24 stunda í dag.
Starfsmenn fengu samkvæmt fréttinni tölvupóst um að samningur hefði „verið gerður við Skeljung um góðan afslátt á eldsneyti til starfsmanna,“ sem einnig nemur átta krónum á bensínlítra með þjónustu og 10 prósent af smurolíum og þvottastöðvum.
Skeljungur hefur gert sambærilega samninga við önnur fyrirtæki. Fjöldi starfsmanna 365 er sagður hafa ákveðið að nýta sér tilboðið, en jafnframt að ritstjórn Fréttablaðsins hafi ákveðið að afþakka tilboðið.
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags Íslenskra Bifreiðareigenda (FÍB), gagnrýnir þessa viðskiptahætti Skeljungs. „Það er auðvitað ekki boðlegt, þegar svona afslættir eru í boði er virkilegt svigrúm innan núverandi álagningar til að lækka á hinn almenna viðskiptavin. Annars erumenn að mismuna sínum viðskiptavinum.“
Ari Edwald, forstjóri 365, gerir ekki athugasemdir við að ritstjórnum
fyrirtækisins bjóðist þessi kjör hjá Skeljungi. Hann segir í frétt 24 stunda að tilboðinu sé ekki beint til starfsmanna beint heldur til fyrirtækisins í heild.
„Við fengum tilboð frá öllum olíufélögunum og gengum að því boði sem gaf mestan afslátt. Það er markmið fyrirtækisins að láta starfsmenn okkar njóta þess með okkur ef við náum almennum afsláttarkjörum á markaði.“
Ari segir fráleitt að eigendatengsl fyrirtækjanna tveggja, sem eru mikil, hafi haft áhrif á þau afsláttarkjör á eldsneyti sem starfsmönnum 365 stóð til boða.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is