Vilja „bjarga“ öðrum háhyrningi – vísa í góða reynslu Keikós
Keikó-verkefnið gekk vel og lærdómurinn af því að veita Keikó frelsi er sá að það er mjög vel framkvæmanlegt að skila háhyrningum úr dýragörðum út í náttúruna, segir David Phillips, stofnandi Keiko-Foundation, sem er kominn á fullt við að „bjarga“ háhyrningnum Lolitu úr sædýrasafninu í Miami eftir 38 ára vist þar. Þeir sem berjast fyrir málstaðnum byggja hann m.a. á jákvæðri reynslu af Keikó-verkefninu. Þótt Keikó hafi aldrei fundið fjölskyldu sína gekk honum mjög vel eftir að honum var sleppt úr kvínni í Vestmannaeyjum, segir í bandaríska dagblaðinu Seattle-Times. Þetta kemur Íslendingum líklega spánskt fyrir sjónir enda fylgdust þeir úr návígi með harmsögulegum örlögum hins einmana Keikós, fyrst við Eyjar og síðan í Norðurhöfum.
Það eru samtökin Orca Network sem standa á bak við tilraunir til þess að fara með Lolitu úr sædýrasafninu og koma henni fyrir við Puget-sund undan ströndum Washington-fylkis þar sem menn telja sig vita að fjölskyldu Lolitu sé enn að finna. Stofnandi Orca-Network, Howard Garrett, segir í samtali við Seattle Times. „Við erum örvæntingarfull, við þurfum að fá fólk í lið með okkur, segja því söguna hennar og segja frá vísindalegum staðreyndum um hvað er hægt að gera.“
David Phillips, stofnandi Free Willy/Keiko Foundation, segir í samtali við blaðið að líklega hefði ekki verið hægt að finna erfiðara dýr til þess að sleppa aftur út í náttúruna en Keikó. Hann hafi verið mjög ungur þegar hann var fangaður, hann hafi aldrei verið hraustur og lítið hafi verið vitað um fjölskyldusögu hans. „Þrátt fyrir það tókst að koma Keikó til heilsu á ný og fara með hann aftur til Íslands þar sem hann synti um með villtum hvölum. Út af fyrir sig fann hann aldrei fjölskylduna sína aftur en honum gekk ofboðslega vel.“ Blaðið nefnir að fimm árum eftir að Keikó sneri aftur til Íslands hafi hann dáið úr lungnabólgu eftir að hann hafði sest að í norskum firði.
Og David Phillips segir að Keikó hafi sannað að það sé mjög vel hægt að skila háhyrningum aftur í náttúruna og telur að mjög góðar líkur séu á að Lolitu munu ganga afskaplega vel. Free Willy/Keiko Foundation hefur gengið til liðs við samtökin sem berjast fyrir því að Lolitu verði sleppt. Þau samtök hafa boðist til að kaupa dýrið frá sædýrasafninu í Miami fyrir samtals 2 milljónir dollara en því tilboði hefur verið hafnað og segja að umhyggja fyrir dýrinu ráði því að því verði aldrei sleppt.
„Lolita hefur átt heima í sædýrasafninu í Miami í meira en þrjá áratugi. Sumir vilja skila henni út í náttúruna. Hún hefur búið á kærleiksríku heimili í meira en 30 ár og ef hún færi þaðan núna er engin vísindaleg sönnun fyrir því að hún gæti lifað af úti á hafi,“ seegir Carolina Perrina, talsmaður sædýrasafnsins. „Það væri mjög óábyrgt af okkur að umgangast hana eins og eitthvert tilraunadýr og tefla heilsu hennar og öryggi í tvísýnu, ekki síst vegna þess að vísindamenn telja að háhyrningarnir í Puge-sundi séu í útrýmingarhættu vegna mikils álags á vistkerfinu þar. Lolita hefur lært að treysta mannfólkinu algjörlega og það væri henni hættulegt að snúa þangað sem bátaumferð er mikil og margt fólk á ferli.“
En „vinir“ Keikós og Lólítu láta þó ekki sannfærast af þessum málflutningi og ætla að setja aukinn kraft í tilraunir sínar til þess að bjarga Lólítu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is