Romney sigraði McCain í Michigan
Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts, varð hlutskarpastur í prófkjöri Repúblikanaflokksins í Michigan í gær. Þegar flestöll atkvæði höfðu verið talin var Romney með 39 prósent atkvæða, John McCain, öldungadeildarþingmaður frá Arizona, með 30 prósent, Mike Huckabee, fyrrverandi ríkisstjóri Arkansas, 16 prósent og Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, 3 prósent.
Úrslitin undirstrika brotakennda stöðu frambjóðenda Repúblíkana því nú hafa þrír frambjóðendur sigrað í jafnmörgum forkosningum.
Romney er fæddur í Michigan og faðir hans var ríkisstjóri þar á sjöunda áratugnum. Sigur í ríkinu var nánast úrslitaatriði fyrir kosningabaráttu hans eftir að hann hafði lent í öðru sæti á eftir Mike Huckabee og John McCain í fyrstu tveimur forkosningunum: í Iowa og New Hampshire. Hann setti tvær milljónir dala í auglýsingar í Michigan.
„Í kvöld hófst endurreisn baráttunnar hjá mér og endurreisn Bandaríkjanna,“ sagði Romney eftir sigurinn.
Efnahags-og atvinnumál skiptumestu máli hjá þeim sem tóku þátt í prófkjörinu í Michigan í gær. Slæm staða bandarísku bifreiðaframleiðendanna hefur leitt af sér 7,4 prósenta atvinnuleysi þar, sem er hvergi meira í Bandaríkjunum.
Frambjóðendur Demókrata áttust við í sjónvarpskappræðum í Nevada í gærkvöldi. Greinilegt þótti að þeim var í mun að setja til hliðar deilur sem spunnist hafa á milli framboðanna um kynþáttamál.
Prófkjör verða haldin hjá Demókrötum í ríkinu á laugardaginn. Sama dag verða forkosningar hjá Repúblikönum í Suður Karólínu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is