Viðskipti Miðvikudagur 16.01.2008 - 10:17 - Ummæli ()

Nýtt kerfi Microsoft fylgist með hjartslætti og streitu starfsfólks

57366704.jpgMicrosoft er að þróa hugbúnað fyrir atvinnulífið sem hægt er að nota til að fylgjast með framleiðni, líkamlegri líðan og hæfni starfsmanna. Fyrirtækið hefur sótt um einkaleyfi á framleiðslunni sem byggist á því að starfsmenn séu tengdir tölvunum með þráðlausum skynjurum sem mæla efnaskipti þeirra. Kerfið gerir stjórnendum kleift að hafa eftirlit með frammistöðu starfsmanna með því að mæla hjartslátt, líkamshita, hreyfingu, svipbrigði, svitamyndun, og blóðþrýsting.

Frá þessu er greint í breska blaðinu The Times og hefur blaðið lesið einkaleyfisumsóknina.

Breytingar á líkamsstarfsemi verða bornar saman við upplýsingar um heilsufar starfsmannsins og ef hjartsláttur eykst eða svipbrigði gefa til kynna streitu fá stjórnendur á vinnustaðnum skilaboð um að starfsmaðurinn þarfnist aðstoðar.

Breska persónuverndarstofnunin hefur brugðist hart við og einnig mannréttindasamtök, verkalýðsfélög og lögmenn. “Þetta kerfi felur í sér inngrip í allt líf starfsmannanna. Það vakna alvarlegar spurningar um einkalífsvernd,“ segir Hugh Tomlinson, breskur lögmaður, sérhærður í persónuvernd. Breska persónuverndin telur að einungis verði hægt að réttlæta  jafnmikið inngrip í einkalíf starfsmanna og kerfið felur í sér í algjörum undantekningatilfellum. Verkalýðsfélög segjast óttast að þetta geti leitt til þess að fólki verði sagt upp störfum ef tölvan telur líkamlegt ástand þess bágborið.

18 mánuðir eru síðan bandaríska einkaleyfisstofnunin fékk umsókn Microsoft vegna þessa hugbúnaðar í hendur og er talið að einkaleyfi verði gefið út innan árs. Microsoft neitar að tjá sig um málið og segist almennt ekki tjá sig um einkaleyfisumsóknir, enda taki kerfi oft breytingum meðan á meðferð einkaleyfisumsóknanna stendur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is