Mánudagur 21.01.2008 - 22:40 - Ummæli ()

Nýi meirihlutinn segist ætla að setja allt upp á borðið í REI málinu

orrei.jpgNýi meirihlutinn kveðst ætla að „setja allt upp á borðið“ í REI-málinu. Oddvitar hans, þeir Ólafur F. Magnússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson voru spurðir um það á fréttamannafundinum í kvöld hvort þeir myndu upplýsa almenning um „hvað raunverulega gerðist, hverjir tóku þátt og hverjir ætluðu að græða?“

„Já við ætlum að gera það,“ sagði Vilhjálmur. „Nú er í gangi stýrihópur undir stjórn Svandísar Svavarsdóttur. Mér hefur reyndar fundist hann ekki starfa nógu rösklega. Við ætlum að ósla eftir því að þessi hópur skili sinni vinnu og síðan verða þessi mál líka tekin fyrir í stjórn Orkuveitunnar þannig að við munum setja allt upp á borð, hvert einasta atriði sem skiptir máli um ferli þessa máls, um viðbrögð, um ábendingar um réttarstöðu borgarinar varðandi fyrirtæki sem borgin á stærstan hluta í. Það er ekki bara Orkuveita Reykjavíkur, það eru fleiri fyrirtæki sem við eigum stóra hluta í, t.d. Faxaflóahafnir. Þannig að sá hópur fær sinn tíma og ég er að vona að hann geti skilað af sér innan þriggja til fjögurra vikna og þar verður allt saman lagt á borðið.“

Ólafur F Magnússon sagði: „Ég vil leggja áherslu á það, að stýrihópurinn mun fá að ljúka sínu verki og að við ætlum ekki að vera með yfirgang gagnvart þeim sem nú lenda í minnihluta heldur eiga gott samstarf. Það virðist vera mjög víðtæk þverpólitísk samstaða í orkumálunum og á það er lögð áhersla í stefnuskrá þessa nýja meirihluta, að orkulindirnar og Orkuveitan verði áfram í eigu almennings.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is