Laugardagur 26.01.2008 - 17:42 - Ummæli ()

Kjartan Magnússon: Myndun nýja meirihlutans tók eina klukkustund

kjartanmagnusson300×200.jpgEiginlegar samningaviðræður um myndun nýs meirihluta Sjálfstæðismanna og F-lista í borgarstjórn tóku ekki nema um klukkustund, að sögn Kjartan Magnússonar borgarfulltrúa, sem einnig átti frumkvæðið að viðræðunum.

Kjartan sagði í þættinum Vikulokin á Rás 1 í dag, að aðdragandinn að nýja meirihlutanum hefði í raun verið mjög skammur og að sjálfar viðræðurnar hefðu aðeins tekið klukkustund. Hann sagði þær hafa byggst á trausti milli manna því þeir Ólafur F. Magnússon, nýr borgarstjóri, hefðu verið vinir í 20 ár og „þar hefur aldrei borið skugga á.“ hann sagði að á grundvelli vináttu og trausts hafi menn getað „sest niður og hafið viðræður og klárað þær á afar skömmum tíma.“

Kjartan tók sérstaklega fram, að á þessum skamma tíma sem viðræðurnar stóðu, hefðu sjálfstæðismenn ekki verið í viðræðum við aðra flokka. Hann sagði að reynt hafi verið að koma því til skila að einhver óheilindi hafi verið á ferðinni og við „haldið því að Ólafi að við værum í viðræðum við Vinstri græna á sömu stundu og nánast hótað því að fara með þeim ef Ólafur kæmi ekki með okkur. Þetta eru helber ósannindi. Við reyndum aldrei að halda því að honum,“ sagði Kjartan.

Dagur B. Eggertsson sagði um þetta í síðustu ræðu sinni sem borgarstjóri á hinum sögulega borgarstjórnarfundi á fimmtudag: „Það hefur verið upplýst að nýr meirihluti í Reykjavík hafi verið myndaður af tveimur, þremur mönnum í húsi hér í bæ. Og það er ljóst af samskiptum sem fram fóru við Ólaf F. Magnússon borgarfulltrúa þennan dag, að minni hálfu og Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa, að af einhverjum ástæðum var Ólafur þess fullviss að á sama tíma í einhverju öðru húsi einhvers staðar annars staðar í bænum ættu sér stað einhverjar aðrar viðræður við einhverja aðra úr þeim hópi sem hann hafði þangað til stutt. Það var auðvitað fjarri sanni.“

Kjartan Magnússon sagði alveg ljóst í sínum huga að þarna færi Dagur með rangt mál og hafi viljað „klína óheilindastmpli“ bæði á Ólaf og sjálfstæðismenn. „Það er alveg ljóst að í kringum svona skipti að þarna er töluverður ruglingur í gangi og það átti sér líka stað fyrir þremur mánuðum. Í meirihlutaskiptunum þá var margoft fullyrt í mín eyru að það væru alls konar viðræður í gangi. Við sjálfstæðismenn vorum þá ásakaðir og spurðir mikið um það af framsóknarmönnum þessa viku áður en meirihlutinn sprakk hvort við værum í viðræðum við Samfylkinguna eða Vinstri græna og ég hef heyrt frá mönnum í kringum Björn Inga Hrafnsson að hann hafi þá verið logandi hræddur og nánast sannfærður um það á tímabili, að við værum í mjög alvarlegum þreifingum við Vinstri græna og jafnvel fólk úr Samfylkingu. Mín niðurstaða úr þessu er sú að minnihlutaflokkarnir sem þá voru hafi látið einskis ófreistað í að telja Birni Inga trú um að sjálfstæðismenn ætluðu að svíkja hann.

Kjartan sagðist jafnan hafa neitað þessu í samtölum sínum því einkennismerki Sjálfstæðisflokksins í samtarfi væri að svíkja ekki og vera heilir í samstafi við aðra flokka til loka kjörtímabilsins.

Hann sagði að af einhverjum ástæðum virðist eitthvað svipað hafi farið af stað hjá Ólafi núna „en við sjálfstæðismenn gáfum enga ástæðu til að ætla að við værum í viðræðum við marga í einu.“

Um þetta sagði Ólafur sjálfur í Kastljósinu á fimmtudagskvöld að sjálfstæðismenn hefðu „ekki beinlínis“ sagt honum að Vinstri grænir myndu mynda meirihluta með þeim ef hann tæki ekki boðinu. „Þeir hafa staðfest við mig að þeir hafi verið í alvöru þreifingum við Vinstri græna einhvern tíma síðan þessi fráfarandi meirihluti var myndaður,“ en það hafi þó ekki haft afgerandi áhrif á afstöðu sína „vegna þess að ég er ekki að fara í nýtt samstarf til að vera á undan einhverjum öðrum í það.“

Ólafur segir svo um þetta sama atriði í viðtali í 24 stundum í dag: „Þetta voru engar formlegar viðræður fyrr en undir blálokin, aðeins var um þreifingar að ræða. Það var alveg ljóst að sjálfstæðismenn höfðu verið með þreifingar í gangi gagnvart oddvitum allra meirihlutaflokkanna nema Samfylkingar á þeim þremur mánuðum sem meirihlutinn var við völd. Það var enginn blekktur af minni hálfu í þessum viðræðum.“

Kjartan sagðist í Vikulokunum í dag ekki geta tjáð sig um hvað hafi orðið til þess af hálfu Ólafs að hann var tilbúinn til samstarfs á þessum tímapunkti en að það hafi verið „traust á milli manna og þá var ekki eftir neinu að bíða. Ég hafði samband við hann. Viðræðunum lauk svo á svona klukkutíma.“

Kjartan sagði Dag líka hafa sakað Ólaf um það að hafa sagt sjálfstæðismönnum að „hann væri viss um að Margrét Sverrisdóttir kæmi með. „Það eru líka ósannindi. Við vissum það á þessum tíma að þetta gæti gerst, að þetta væri möguleiki. En við trúðum því reyndar að varaborgarfulltrúinn myndi bakka upp sinn borgarfulltrúa eða að minnsta kosti vilja ræða um það við hann hverju nýi meirihlutinn væri að fá framgengt og þegar hún væri búin að fara yfir stefnuskrána þá sæi hún að stefnumálum F-listans væri betur borgið í samstarfi með okkur.“

Kjartan sagði að hlutirnir hafi gerst svo hratt að þeirra eigin varaborgarfulltrúar hafi frétt af þessu á sama tíma og Margrét. En þegar borgarfulltrúarnir hafi verið búnir að ná saman „þá þolir það litla bið að tilkynna það út í þjóðfélagið, almenningur verður að fá að vita að það eru breyttar aðstæður.“ Hann sagði að ekki hefði verið heppilegt að halda því leyndu dögum saman.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is