Beckham-smokkar mest seldir í Kína
Nafn Davids Beckham er nú notað í Kína til þess að selja smokka. Getnaðarvarnir með nafni hans hafa selst eins og heitar lummur og eru orðnar mest seldu getnaðarvarnirnar í Kína. Markaðssetningin fyrir smokkana gefur í skyn að menn sem noti þá muni skora í svefnherberginu eins og Beckham gerir á fótboltavellinum.
Beckham hefur ekki gefið samþykki fyrir því að nafn hans sé notað í þessu skyni, og aðdáendur hans í Kína eru ekki ánægðir með hann skuli vera notaður á þennan hátt. „Við viljum ekki að Beckham haldi að Kínverjar séu að sýna honum vanvirðingu,“ er haft eftir einum aðdáenda. „Við elskum hann hérna.“ Talsmaður fyrir Beckham sagði að smokkarnir bæru ekki hið opinbera vörumerki fótboltakappans.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is