Danir kalla janúar mánuð dauðans – þá eru langflest dauðsföll í Danmörku
„Jólastress endar með dauða í janúar,“ segir sálfræðingurinn Jørn H. Beckmanns þegar hann er spurðu hvers vegna flest dauðsföll í Danmörku séu í janúar, sem Danir kalla mánuð dauðans.
„5.000 dauðsföll í janúar er mun meira en gerist hina tólf mánuði ársins,“ segir í Fyens
Stiftstidende.
Skýring sálfræðingsins frá Óðinsvéum er að jólamánuðurinn með allar væntingarnar taki á tilfinningalífið og hinir sjúku og veikburða séu oft tilbúnir að fara þegar janúar rennur upp.
Læknirinn Henrik Dibbern telur að mörg dauðsföll í janúar miðað við aðra mánuði séu
vegna uppsafnaðra flensubaktería og hverskonar sýkinga.
Hvað sem öllum skýringum líður sýnir tölfræðin að í janúar kvöddu 5.130 Danir þetta líf sem er 16,5% fleiri en í mánuðinum þegar fæst dauðsföll verða, nefnilega febrúar.
„Ég held að skýringin liggi mikið í því að eldra fólk og veikt hefur brennandi löngun til að lifa síðustu jólin sín. Oft eru það stórafmæli eða ferming barnabarns sem heldur lífi í fólki en jólin eru ofarlega á lista. Þess vegna kalla þeir veikustu oft síðasta lífsneistann fram á jólahátíðinni og eru svo andlega tilbúnir að kveðja í janúar,“ segir dómprófasturinn í Óðinsvéum, Christian Dickmeiss .
Dagblöð segjast líka finna fyrir þessu því aldrei eru birtar jafn margar dánartilkynningar og í janúar.
„Við megum heldur ekki gleyma því að janúar, með allt sitt myrkur, er sá mánuður sem flestir þjást af þunglyndi,“ segir Dickmeiss.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is